Thread: Heimsvaldakerfið - ESB - Ísland

Results 1 to 1 of 1

  1. #1
    Join Date Aug 2007
    Posts 767
    Rep Power 0

    Default Heimsvaldakerfið - ESB - Ísland


    Ég las þennan góða bækling eftir Þórarinn Hjartarson. Og góður bæklingur er svo góður að ég hef skannað hann og sett upp í pdf-skjal.
    Originally Posted by 1.hluti Heimsvaldastefna nútímans - inngangur
    Ísland spriklar í netum heimsvaldasinna. Í neti ESB, í neti AGS, í neti Bretlands og Hollands. En það sýnir sig betur og betur að þessi net eru meira og minna samanriðin, og ef rýnt er betur má sjá útlínur enn stærra netkerfis sem þau eru hluti af. Íslendingar taka afleiðingum af íslenskum stjórnmálum og brölti íslenskra athafnamanna. En íslensk þjóð er líka leiksoppur voldugri ytri afla. Það er ástæða til að glöggva sig á stöðu Íslands í hinu stóra samhengi.
    ...til að halda áfram (pdf 7.2 MB); http://rapidshare.com/files/30228762...dEsbIsland.pdf

    ---

    Þórarinn er oft að vísa í slóðir í neðanmálsgreinum. Til þæginda og hagleiks hef ég ákveðið taka saman þá hlekki svo hægt sé að koma hér og smella á með auðveldum;

    1. www.monthlyreview.org/0601amin.htm
    2.
    3. www.boell-meo.org/download_en/senghaas_en.pdf
    4.
    5. http://www.globalresearch.ca/index.p...xt=va&aid=9453
    6. http://www.monthlyreview.org/0407jbf.htm
    7. http://angelfire.com/cantina/negri/HAREMI
    8. http://www.lahaine.org/petras/articu...?p=1692&more=1
    9. http://www.lahaine.org/petras/articu...?p=1692&more=1
    10.
    11. http://work.colum.edu/~amiller/wolfowitz1992.htm
    12.
    13. http://www.eggin.is/index.php?option...=653&Itemid=47
    14.
    15. http://en.wikipedia.org/wiki/2008_Bucharest_summit
    16. www.eubusiness.com/Transport/black-sea
    17. http://www.europe-solidaire.org/spip.php?article13710
    18. http://www.globalresearch.ca/index.p...t=va&aid=13055
    19. www.hagstofa.is/hagtidindi
    20. http://inhauth.blog.is/blog/inhauth
    21. http://www.sedlabanki.is/lisalib/get...px?itemid=6794
    22.
    23. http://www.globalresearch.ca/index.p...t=va&aid=13055
    24. www.ogmundur.is/annad/nr/4557
    25. www.ogmundur.is/annad/nr/4705
    26. www.germanforeign-policy.com/de/fulltext/57529

    ---
    Síðan efnisyfirlit;

    1. hluti: Heimsvaldastefna nútímans

    2-3 Þrjú þróunarstig kapitalismans
    4-6 Samhengi heimsvaldastefnu og efnahagsþróunar
    7-8 Sjálfsákvörðunarréttur þjóða og tilfærsla byltingarinnar
    9-11 Nýfrjálshyggjan og systur hennar tvær
    11-13 Hardt og Negri um endalok heimsvaldastefnunnar
    13-15 Felur hnattvæðing í sér "valddreifingu"?
    15-16 Vonarljós
    16-18 Heimsvaldakerfið
    16-17 Hvað skýrir mikla árasarhneigð USA eftir 1990?
    17-20 "Stríð gegn hryðjuverkum"


    2.hluti: ESB og Ísland í heimsvaldakerfinu

    21-22 ESB sem heimsvaldablokk
    22-25 Heimsvaldastefna ESB út á við
    25-27 Austur-Evrópa - lífsrými (lebensraum) fyrir vesturevrópska auðhringa
    27-29 Heimsvaldastefna skuldaþrælkunar
    29-31 Ísland og Evrópusamruninn
    31-33 Útrásin og afdrif hennar
    33-35 Samstilltar aðgerðir AGS og ESB gagnvart Íslandi
    35-26 Lokaorð: hin skerta umræða
    ---
    Originally Posted by Lokaorð: hin skerta umræða
    Við búum í heimi sem undirlagður er altæku arðráns- og valdakerfi, heimsvaldakerfinu, sem hefur haldið grundvallareinkennum sínum í rúma öld. Á seinni hluta þeirrar rúmu aldar - eftir að hið formlega nýlendukerfi molnaði - hafa helstu valdhafar þessa kerfis kappsamlega innréttað það með stofnunum sem gefa því yfirbragð opinbers valds, þ.e.a.s yfirbragð "alþjóðlegs", "yfirþjóðslegs" valds sem þjónar engu að síður - á misskýran hátt - hagsmunum þessara valdhafa. Slíkar stofnanir eru AGS, Heimsbankinn, GATT, Heimsviðskiptastofnunin, einnig Sameinuðu þjóðirnar (Öryggisráðið). Með tungutaki valdsins heita þær "alþjóðsamfélagið". "Alþjóðasamfélagið" grípur inn, skakkar leikinn þar og hér. Í seinni tíð tilheyrir heimslögreglan NATO einnig þessu "alþjóðasamfélagi". Og stofnanirnar eru miklu fleiri eins og t.d. alltumfaðmandi net vestrænna frétta- og sjónvarpsstöðva sem gegnir meginhlutverki í yfirbyggingu kerfisins. Í okkar heimshluta er ESB (ásamt NATO) helsti fulltrúi kerfisins og kallar sig, með tungutaki valdsins "Evrópa".
    Þessar stofnanir ákvarða viðskiptahættina og umferðarreglur fjármagnsins í heiminum. Þær mynda hinn ytri ramma sem tryggir rennsli peninganna í réttum farvegum í heimsvaldakerfinu. En sem sagt, þær hafa hlutlaust yfirbragð: þær eru "efnahagskerfi nútímans". Þær eru "nútíminn".
    Íslensk stjórnmálaumræða tekur þennan ytri ramma sem gefinn. Setur ekki við hann spurningamerki. En það að ræða íslensk stjórnmál og efnahagsmál án þess að ræða þennan ytri ramma á gagnrýninn hátt, án þess að skoða hvernig hann skilorðsbindur allt efnahags- og stjórnmálalíf í landinu, er rörsýni, þ.e.a.s slík þröngsýni að jafngildir því að skoða umhverfi sitt út um mjótt rör. Sú umræða sem sleppir að ræða rammann og bindur sig við forsendur hans er stórlega skert umræða. Ennfremur: Það lýðræði sem undirgengst sömu skerðingu er afar takmarkað lýðræði.
    Sumt fólk er bláeygt: heldur t.d. að hægt sé að reka hér fjölskrúðugt atvinnulíf án þess að horfa á þær hörðu reglur sem áðurnefndur rammi - með mikið vald á bak við sig - hefur sett. Annars konar blinda er þó verri: Sú sem lítur á þennan ramma sem efnahagslegt lögmál sem ekki sé hægt að breyta og því fráleitt að andæfa. Það jafngildir því að segja: Einokunarauðvald ræður! Verði þess gráðugi vilji!
    Í þessum ritlingi er þetta efnahags- og valdakerfi til lauslegar skoðunar. Hér er brugðið upp mynd af heimsvaldakerfi sem er ósveigjanlegt og samhangandi kerfi arðráns og valda sem þjónar stærstu og sterkustu einingunum. Á vesturhveli eru það einokunarauðvald eininganna USA og ESB. Gegn þeim hlýtur sjálfstæðisbarátta okkar daga að beinast. Jafnhliða því að snúast um vörn efnahagslegs og pólitísks sjálfsæðis þarf sú barátta að taka á sig mynd heimsvaldaandstöðu. Annars verður hún fálmkennd og veik. Baráttan gegn íslensku auðvaldi verður sömuleiðis ómarkviss ef ekki er tekið mið af stöðu Íslands í heimsvaldakerfinu.
  2. The Following User Says Thank You to al8 For This Useful Post:


Similar Threads

  1. Nyval på island
    By Crux in forum Skandinavisk
    Replies: 15
    Last Post: 4th February 2009, 07:16
  2. 'Inland Island'
    By trivas7 in forum Cultural
    Replies: 0
    Last Post: 8th September 2008, 05:07
  3. The Island: Movie
    By red_orchestra in forum Cultural
    Replies: 7
    Last Post: 6th August 2005, 07:03

Posting Permissions

  • You may not post new threads
  • You may not post replies
  • You may not post attachments
  • You may not edit your posts

Tags for this Thread